Læt myndir duga núna..

en ekki af okkur liðinu hérna í Kalkúnalandi heldur henni Sigrúnu Evu sætumús... var í myndatöku hjá vinkonu mömmu sinnar og ég fékk að taka nokkrar myndir til að sýna hér, fleiri eru svo á síðunni hjá þeim systkynum...

20080914160733_1

20080914160804_27

  20080914160807_29

krúsí

Sigrún pæja

sæta mús

tt

Voru svo margar flottar að ég gat ekki valið ;-))


SVO ÖMURLEGT

hver ákveður hvað fegurð er.... fáranlegt alveg...er alveg brjálaðslega pirruð yfir þessu rugli þarna úti..


mbl.is Allt í plati í Peking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja..

Kominn tími á smá færslu hérna, ekki sú duglegasta þessa dagana.... fór í nýrnasteinatöku þar síðustu helgi, gekk vel, systir mín var svo fertug þann 30 júní og var glatt á hjalla þar....fór síðan til Akureyrar með gamla liðinu í viku og var það bara ferlega fínt... ég er ekki mikil "Íslandsútilegu/sumarbústaða" kona, og er þetta bara gott í hófi, held ég sé búin með minn skammt í bili, enda var þetta á Akureyri og gat ég því verslað líkaGrin, sem er alveg ómissandi haha..
Hef nú ekkert mikið meira að segja í bili og hef algjörlega gefist upp á að setja inn myndir hérna, kemur alltaf einhver villumelding og nenni ég því ekki lengur... Verð samt að segja frá einu hérna, var að horfa á bíómynd sem heitir JUNO og mæli ég með henni, ekkert smá falleg og vel gerð mynd, líka fyndin og með flottri tónlist...varð bara að tjá mig um þetta, horfði á hana í gær og er enn dolfallin.... ókíbæ


Hæ hæ vinir og vandamenn

er ekkert rosalega að nenna að blogga þessa dagana, skrifa þó smá inn núna, ekki er maður sáttur með úrslitin í eurovision, hefði öll lögin mátt vinna, bara ekki þetta lag, hræðilegt... fannst sjálfri Bosnía, Serbía og Krótatía flottust og AUÐVITAÐ fékk Simon minn líka athygli, einuningis fyrir rámu röddina og einstaka fegurð, ennþá er jafn leiðinlegt og pirrandi að setja inn myndir hérna á þessu mbl bloggi, bara gengur ekki, þannig ekkert verður um svoleiðis í bili, svo annað, ég er nú yfirleitt inn á facebook ef þið viljið hitta á mig..;-)
Bestustu systir minn fer alltaf meira fram og er hún duglegasta manneskja sem ég þekki og ég elska þig svaka mikið ef þú lest þetta ;-)) Sigrún Eva stækkar og stækkar og er góð í holdum eins og frænka sín ;-) annars bara ekkert annað að frétta.. endilega kvittið svo ég sjái hvort einhver sé að lesa þetta ennþá ;-) og til hamingju allir sem hafa átt afmæli og ég hef gleymt(sem gerist nú ekki oft) en er að gerast þessa dagana....kossar og knús

Eygló, Aðalsteinn, Sigursteinn og Þorsteinn kveðja


jæja

byrja á pirring, var búin að skrifa helling og það datt bara út.. þannig ég byrja bara aftur..

Ég er bara í ágætis málum þessa dagana, komið aftur þetta nýrnasteinavesen og vonandi lagast það bara fyrir sumarið, Ingólfur fluttur og fór ekki hátt um það, bara flutt á meðan við vorum úti og var ekkert að segja neinum, en svona er hann og þeir vita það sem hann þekkja..Sigrún Eva prinsessa dafnar vel og er orðin kraftaleg eins og frænka hennar ;-).. ekki þarf ég nú að tala um hvað það var gaman að hitta systkynina börnin þegar maður kom heim aftur, hef ekki til orð hvað ég elska þessi börn mikið, svo góð og indæl börn... hef ekkert meira að segja því ég nenni ekki að skrifa allt aftur sem ég byrjaði á áðan... en set inn það vinsælasta í flakkara og tónlistarmálum hjá mér núna..

Flakkari
Army Wives
Cane
Dirt
Lipstick Jungle, allt frábærar seríur..


Tónlist
Seal, allt
No estamos solos, Eros og Ricky Martin
Como uno lobo, Miguel Bosé og Bimba Bosé
Labios Compartidos, Maná

Smá slef hérna yfir flytjanda og mest sjarmerandi manni þessa stundina hjá mér....
http://www.youtube.com/watch?v=h2Jb0lxowJY

http://www.youtube.com/watch?v=JLhd7jEofcg

 


Fermingarblogg...

varð að setja inn eina mynd af fermingarbarninu, svo falleg í gær og söng lag með vinkonu sinni handa mömmu sinni, stal þessarri mynd hjá Ernu..;-))

20mars 011


Páskar

ætla bara að óska ykkur fyrirfram gleðilega páska og hafið það svaka gott og borðið mikið af súkkulaði... fer svo til Tenerife eftir páska þannig ég skrifa örugglega ekkert inn í bili...

HappyEaster

Mér finnst...

eitthvað rangt við þennan dóm, en það er bara ég ;.-//
mbl.is Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já nei nei, oj oj oj

oj oj oj


mbl.is Taylor fyrirskipaði mannát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já nei nei, oj oj oj

oj oj oj


mbl.is Taylor fyrirskipaði mannát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband